26.02.1974
Sameinað þing: 60. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2364 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)
Umræður utan dagskrár
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að vekja athygli á öðru máli, sem er náskylt því máli, sem hér er til umr.
Það liggja fyrir upplýsingar um það, að í svonefndum Öryggis- og rannsóknarskóla norska hersins eru m.a. kennd þau fræði, að samtök ungra Íslendinga úti í Noregi, námsmanna þeirra, sem ötullega hafa unnið að því að kynna landhelgisbaráttu okkar Íslendinga og afla henni fylgis þar í landi, séu hættuleg öryggi Noregs. Frá þessu var m.a. skýrt í fréttaauka frá Noregi, sem fluttur var í hádegisfréttatíma íslenska útvarpsins s.l. sunnudag. Fréttaauki þessi fjallaði um ýmsar upplýsingar, sem fram hafa komið vegna réttarhalda yfir ungum norskum hermanni, sem ljóstraði því upp, að heræfingar, sem Atlantshafsbandalagið hélt í Norður-Noregi á s.l. vori, stefndu ekki að því að efla viðbúnað gegn hugsanlegri utanaðkomandi árás, efling svonefnds „innra öryggis“ var meginmarkmiðið, og þessum heræfingum var stefnt gegn ýmsum vinstri sinnuðum samtökum í Noregi, sem hernaðaryfirvöld norsk nefna einu nafni „5. herdeild“.
Það er út af fyrir sig ærið umhugsunarefni fyrir okkur Íslendinga, hvaða lærdóm við, þessi NATO-þjóð með NATO-her í landi okkar, getum dregið af þessum NATO-boðskap, hvaða nöfn íslensk á samtökum og einstaklingum séu líklegust til að fyrirfinnast í sams konar NATO-skýrslum, sem án efa hafa verið gerðar, ég fullyrði það, varðandi „5. herdeildina“ hér á Íslandi. En látum þetta liggja milli hluta að sinni.
Það, sem ég vildi fyrst og fremst leggja áherslu á hér og nú, er þetta: Í skóla norska hersins er mönnum kennt það, að innan „5. herdeildarinnar“ séu samtök, sem norsk hernaðaryfirvöld nefna „Islandsfronten“. Utanrrn. okkar hlýtur að sjálfsögðu að krefjast skýringar á þessu. Samkv. þessum fréttaauka s.l. sunnudag er varla nokkur vafi á því, að með „Islandsfronten“ er átt við fyrrnefnd samtök íslenskra stúdenta. Virðist því líka fullkomin ástæða til þess, að utanrrh. okkar mótmæli og mótmæli harðlega. Utanrrn. getur ekki látið það afskiptalaust, að ungir Íslendingar séu skráðir á svartan lista hjá hernaðaryfirvöldum Noregs, séu taldir vargar í véum hjá þessari frændþjóð okkar fyrir það eitt, að því er virðist, að þeir hafa af einurð og dugnaði barist fyrir sjálfsögðum rétti eigin þjóðar.