06.03.1974
Neðri deild: 73. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2551 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 5. mars 1974.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Bragi Sigurjónsson bankaútibússtjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Stefán Gunnlaugsson,

1. landsk. þm.

Bragi Sigurjónsson hefur áður tekið sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili. Hefur rannsókn á kjörbréfi hans því farið fram, og tekur hann nú sæti hér á þingi sem 5. landsk. þm. Býð ég hann velkominn til starfa.