01.11.1973
Efri deild: 11. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (236)

60. mál, hjúkrunarlög

Heilbr:

og trmrh. (Magnús Kjartansson) : Herra forseti. Frv. það, sem hér er til 1. umr., er niðurstaða af endurskoðun á hjúkrunarlögum frá 12. maí 1962. Endurskoðunin var gerð í heilbr.- og trmrn. í sumar leið. Eins og fram kemur í aths. þeim, sem frv. fylgja, var aðalástæðan fyrir endurskoðun á eldri l. sú, að í þeim var talið vanta ákvæði um sérnám í hjúkrun og viðurkenningu á slíku sérnámi. Allmargar hjúkrunarkonur hafa farið utan og lagt stund á kennslufræði, spítalastjórn, heilsuvernd og geðhjúkrunarfræði, en í þessum greinum öllum er engin kennsla hér á landi. Þetta er yfirleitt eins til tveggja ára nám, og hafa hjúkrunarkonurnar flestar stundað það annars staðar á Norðurlöndum og einnig í Bretlandi. Aftur á móti hafa stærstu sjúkrahúsin hérlendis boðið upp á sérnám í röntgenfræðum, svæfingarfræðum og hjúkrun á skurðdeildum. Það nám þyrfti að auka og samræma og bæta síðan við fleiri sérgreinum innan hjúkrunar. Má þar nefna hjúkrun á barnadeildum, lyflækninga- og handlækningadeildum. Nauðsynlegt er að gera ákveðnar kröfur um námsefni og námstíma allra þessara hópa og veita þeim viðurkenningu að námi loknu. Þá þykir rétt, að hjúkrunarleyfi séu veitt af ráðuneytinu. Nú eru hjúkrunarskólarnir orðnir tveir og auk þeirra komin námsbraut í hjúkrunarfræðum í Háskóla Íslands. Þarna þarf því að koma til samræming við leyfisveitingu til annarra heilbrigðisstétta. Sérstök nefnd, þar sem heilbrmrn. á að eiga einn fulltrúa, menntmrn. annan og Hjúkrunarfélag Íslands hinn þriðja, á samkv. frv. að fjalla um hjúkrunarleyfi til útlendinga. Sú nefnd mun einnig fjalla um viðurkenningu á sérnámi hjúkrunarkvenna, og getur Hjúkrunarfélagið nefnt tvær sérfróðar hjúkrunarkonur, er vinna með nefndinni hverju sinni, t. d. heilsuverndarhjúkrunarkonur, röntgenhjúkrunarkonur o.s.frv.

Ég vil að lokum geta þess, að fram hafa komið till. um nýtt samheiti fyrir hjúkrunarkonur og hjúkrunarmenn, en það er óneitanlega dálítið annarlegt að þurfa að nota þarna tvö heiti yfir kynferði. Þau nöfn, sem þegar hefur verið rætt um, eru hjúkrunarfræðingur, hjúkrunarmaður, hjúkrir, sem mundi þá beygjast eins og læknir, hjúkri og hjúkrari. Hjúkrunarfélag Íslands mun á næstunni fjalla um þessar till. að nýju starfsheiti, og vonast er til, að ákveðin till. liggi fyrir frá félaginu, áður en frv. þetta verður afgr. hér í þinginu.

Að öðru leyti leyfi ég mér að vísa til grg. þeirrar, sem fylgir frv., og legg til,. herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn.