07.03.1974
Efri deild: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2579 í B-deild Alþingistíðinda. (2360)

257. mál, hússtjórnarskólar

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að láta í ljós ánægju mína yfir því, að þessi handíðaskóli muni koma utan Reykjavíkur, og ég tek undir það með hæstv. menntmrh., að mér væri enn meiri ánægja að því, ef menntmrn. treysti sér til að hafa þennan skóla einnig utan þéttbýlisins á Akureyri.