12.03.1974
Sameinað þing: 65. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2697 í B-deild Alþingistíðinda. (2444)

195. mál, bundnar innistæður í Seðlabanka Íslands

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 344 fsp. til hæstv. viðskrh. um það, hversu hárri fjárhæð bundnar innistæður banka, sparisjóða og innlánsdeilda námu hjá Seðlabanka Íslands um s.l. áramót og hvernig fé þetta skiptist eftir kjördæmum.