13.03.1974
Efri deild: 76. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2723 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)
Afgreiðsla mála úr nefndum
Jón Árnason:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessar umr. frekar, en þetta sýnir, hvað það var rétt, sem ég hélt fram hér áðan. Vinnubrögðin í n. eru fyrir neðan allar hellur, að það skuli hafa tekið þrjá mánuði að ákveða að senda frv. til umsagnar, — frv., sem búið er að liggja hér fyrir í þinginu fyrir einu ári, alveg hliðstætt frv. Síðan fréttir maður í dag, að það sé fyrst í gær verið að taka ákvörðun um að senda það til umsagnar. Það er ekki von, að það gangi vel með afgreiðslu mála hér á Alþingi með svona vinnubrögðum, það verð ég að segja.