13.03.1974
Neðri deild: 81. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2823 í B-deild Alþingistíðinda. (2523)
259. mál, skattkerfisbreyting
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að gera grein fyrir atkv. mínu á eftirfarandi hátt: Ég hefði kosið, að móti tekjuskattslækkun hefði komið eingöngu niðurskurður á fjárl., t.d. 5%, sem er 1500 millj. kr. Áunnist hefði tvennt, dregið úr skattpíningunni og um leið verið nokkur hemill gegn óðaverðbólgunni. Ég lít svo á, að hækkun söluskatts um 5 stig, eins og gert er ráð fyrir í frv., tákni í raun uppgjöf ríkisstj. gegn verðbólgunni, og var síst á bætandi, enda verður ekki annað séð en að slík hækkun stuðli að því að kippa stoðum undan atvinnurekstrinum og skerða kjör launþega. Brtt. Alþfl. um 3.5 stiga hækkun söluskatts samsvarar tekjuskattslækkun þeirri, sem boðuð er í frv., og þótt ég sé andvígur hækkun söluskatts við núverandi aðstæður í efnahagslífinu, tel ég rétt, þar sem verkalýðshreyfingin hefur við gerð kjarasamninga sinna óskað eftir þessari skattkerfisbreytingu og ekki síst þar sem mér er ljós hin knýjandi þörf að létta á drápsklyfjum tekjuskattsins, að segja já.