14.03.1974
Neðri deild: 82. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2825 í B-deild Alþingistíðinda. (2534)
259. mál, skattkerfisbreyting
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Með samþykkt á því að fella niður 7. gr. frv. og síðar samþykkt 19. gr. hefur verið gerð meiri breyting en mun hafa verið ætlun hv. þm., því að með samþykkt 6. gr. er gert ráð fyrir því, að sveitarsjóðir fái 8% af söluskatti í Jöfnunarsjóð, en með 2. lið 19. gr. frv., eins og hann var, falla úr gildi lög nr. 61 1964, um breyt. á l. nr. 10 frá 1960, um söluskatt, og lög nr. 3 frá 1970, um hreyt. á sömu l. Ég hygg, að það hafi aldrei verið ætlun hv. alþm., að þessi breyting yrði gerð, og leyfi mér því að leggja fram skrifl. brtt. þess efnis, að 2. málsgr. 18. gr. frv., eins og það er núna, falli niður, svo að sá söluskattur, sem nú er í gildi, haldi gildi sínu áfram. Þar sem þessi till. er skrifleg og of seint fram komin, verð ég að leyfa mér að biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni. En efni málsins er þetta, sem ég sagði, að með því að samþykkja þessa málsgr. er verið að samþykkja að fella úr gildi þann söluskatt, sem nú er í gildi, og hygg ég, að hv. þm. hafi ekki ætlast til þess.