14.03.1974
Neðri deild: 83. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Gils Guðmundsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 13. mars 1974.
Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþ. í forföllum mínum.
Gunnar Gíslason,
2, þm. Norðurl. v.“
Samkv. þessu tekur Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri nú sæti á Alþ. sem 2. þm. Norðurl. v., og býð ég hann velkominn til starfa.