14.03.1974
Neðri deild: 83. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2859 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)
67. mál, happdrættislán ríkissjóðs til að fullgera Djúpveg
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Herra forseti. Ég ætlaði nú að vekja athygli hv. þdm, á því, sem þegar hefur verið bent á, að hér liggja fyrir d. tvö samkynja frv., sem lent hafa sitt til hvorrar n. Þetta er ekkert eindæmi, þó að það sé óheppilegt, þegar frv. eru algerlega eða svo til algerlega samkynja. Þetta hefur oft átt sér stað áður. Ég er ekki að segja, að það sé neitt betra fyrir það, en það hefur nú þannig til tekist.
Þetta frv., sem hér er til umr., fór til samgn. Hún hefur afgreitt það, skilað nál. og mælt með þeim breyt., sem frsm. n. gerði hér grein fyrir.
Hitt frv., sem hv. 5. þm. Norðurl. e. minntist á og er frv. um happdrættislán vegna Norðurlandsvegar, fór hins vegar til fjh: og viðskn. Sú n. hefur litið svo á, að það væri eðlilegt, að þessi mál væru skoðuð í samhengi við endurskoðun vegáætlunarinnar, sem nú stendur yfir, — öll þessi happdrættislán veganna væru skoðuð í sambandi við þá endurskoðun.
Nú vil ég síst af öllu verða til þess að torvelda vegargerð á Vestfjörðum. Það vil ég, að komi hér alveg skýrt fram. En ég teldi það samt sem áður betri hátt, að happdrættismál veganna, öll sem hér liggja fyrir, yrðu tekin til meðferðar í heild og þá, eins og ég sagði, í nokkrum tengslum við þá endurskoðun vegáætlunarinnar, sem stendur yfir og hlýtur að koma til meðferðar í Sþ. innan fárra vikna. Ég tel þess vegna, að það væri skynsamlegast að hægja nokkuð á afgreiðslu þessa máls, ef t.d. flm. og hv. samgn. gætu orðið ásátt um það, láta t.d. lokaafgreiðslu þess í d. bíða um sinn, t.d. eftir að þessari umr, væri þá lokið, og taka það svo til lokameðferðar, eftir að heildarskoðun á þessum málum hefði farið fram.
Ég vil svo láta það koma alveg skýrt fram hér, að vegna algerrar sérstöðu Vestfjarða í vegamálunum og ekki síst í sambandi við þennan veg, hér er um að ræða að leggja bráðnauðsynlegan tengiveg, þar sem enginn vegur er fyrir, — vegna þessarar algeru sérstöðu mun ég greiða þessu frv. atkv. þrátt fyrir þær aths., sem ég hef hér látið falla um meðferð þessara mála í heild.