01.11.1973
Sameinað þing: 11. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

4. mál, sjóminjasafn

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég lýsi fylgi mínu við þá till., sem hér er flutt. Ég tel það mjög vel við eigandi, að á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar verði stofnað sjónminjasafn, og ég tel líka mjög vel til fallið, að það verði staðsett í Hafnarfirði.