26.03.1974
Sameinað þing: 70. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3134 í B-deild Alþingistíðinda. (2801)

75. mál, bætt póst- og símaþjónusta

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Fyrir hönd flm. þessarar till. leyfi ég mér að færa hv. allshn. þakkir fyrir góða afgreiðslu málsins. Vona ég, að þessi væntanlega þál. verði til aukinna athafna og umbóta í þessum málum.