02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3338 í B-deild Alþingistíðinda. (3025)

287. mál, fiskiðnskóli í Siglufirði

Fyrirspyrjandi (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Hinn 30. mars 1973 var samþ. þál. um fiskiðnskóla í Siglufirði, sem hljóðar svo: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að hefja undirbúning að því, að settur verði á stofn fiskiðnskóli í Siglufirði“. Nú hef ég ásamt hv. 5. þm. Norðurl. v. leyft mér að bera fram fsp. um það til hæstv. menntmrh, hvað þessum undirbúningi líði.