02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3339 í B-deild Alþingistíðinda. (3027)

287. mál, fiskiðnskóli í Siglufirði

Fyrirspyrjandi (Eyjólfur H. Jónsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. menntmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið. Að vísu hefði ég kosið, að þetta mál hefði náð lengra fram en raun ber vitni. Alþingi hefur markað þá stefnu, að fiskiðnskóli rísi í Siglufirði, og ég vænti þess, að hæstv. menntmrh. fylgi því máli fram og lengri dráttur verði ekki á, að undirbúningur hefjist.