02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3340 í B-deild Alþingistíðinda. (3028)
422. mál, dreifing sjónvarps
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Það var snemma á þinginu, að ég bar fram fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj. 14. Sú fsp. kom til umr. 30. okt. s.l., og varðaði hún dreifingu sjónvarps, og var þar spurt um, hvað miðað hefði dreifingu sjónvarps á s.l. ári, um aðflutningsgjöld af innfluttum sjónvarpstækjum og hver væru áform um að ljúka dreifingu sjónvarps og hvað væri áformað að gera í því máli á næstunni. Í svörum menntmrh, kom fram, að tekjurnar af innfluttum sjónvarpstækjum voru verulega þornandi lind. Árið 1968 námu þær 56.7 millj. kr., en á yfirstandandi ári var áætlað, að þær næmu 24 millj. kr. Einnig kom fram í svörum ráðherrans þá, að ekki voru uppi á þeim tíma neinar áætlanir af hálfu stjórnvalda um tekjuöflun til frekari dreifingar sjónvarpsins. Síðan hafa komið fram tvær þáltill. um þetta efni, og eru þær á þskj. 13 og 19, en þær hafa ekki hlotið afgreiðslu enn á þinginu.
Það hefur komið fram samkv. skýrslum Landssímans, að nú er talið, að 1472 sveitabæir njóti engra eða ófullkominna sjónvarpsmóttökuskilyrða og að það muni þurfa um 150 sjónvarpsstöðvar til að veita þessum bæjum sjónvarpsskilyrði. Hvað þetta muni kosta, er erfitt að segja nú, en eldri áætlanir voru um það, að þetta mundi kosta um 150 millj. kr. Þó að mál þetta snerti ekki marga, þá brennur það mjög á þeim bæjum og því fólki, sem enn hefur engin eða mjög ófullkomin sjónvarpsskilyrði, og það býður að sjálfsögðu mjög spennt að vita, hvernig horfir með þetta mál. Ég hef því leyft mér að flytja fsp. til hæstv. menntmrh. enn um sama efni á þskj. 589, og hljóðar hún svo, með leyfi forseta:
„1. Hvaða framkvæmdir eru fyrirhugaðar á þessu ári til að koma sjónvarpi til byggða, sem enn hafa engin eða ófullkomin móttökuskilyrði fyrir sendingar sjónvarpsins?
2. Eru fyrirhugaðar nýjar fjármögnunarleiðir til að flýta dreifingu sjónvarps og til að endurbæta dreifingarkerfi sjónvarpsins?
3. Hefur verið gerð áætlun um það, hvenær hægt verði að ljúka dreifingu sjónvarpsins til þeirra aðila, sem geta vænst þess að geta notið sjónvarpssendinga á næstu árum?“