02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3342 í B-deild Alþingistíðinda. (3033)

422. mál, dreifing sjónvarps

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Varðandi dreifingu sjónvarps til fiskimiða umhverfis landið get ég vísað til svars míns við fsp. um það mál, sem borin var fram fyrr í vetur. Þar kom fram, að það mál er nú í tæknilegri athugun hjá Landssímanum að undirlagi Ríkisútvarpsins. Eins og ég sagði þá, endurtek ég nú, að strax og niðurstaða þeirrar athugunar liggur fyrir, mun ég gera þingheimi grein fyrir því.