03.04.1974
Efri deild: 97. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3423 í B-deild Alþingistíðinda. (3062)
3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins
Forsrh. (Ólafar Jóhannesson):
Herra forseti. Ég vil þakka þeim tveimur hv. alþm., sem hér hafa talað, fyrir góðar undirtektir við þetta frv. En ég vildi aðeins gera aths. út af því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði og hlýtur að stafa af misminni hjá honum, þ.e. viðvíkjandi skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar. Það er ákvæði um það í l., að það á að leggja skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar fyrir Alþ. ár hvert, og það gerir forsrh. Það var gert í fyrra, lögð fram ítarleg skýrsla, og skýrsla fyrir síðasta ár var í prentun, þegar prentaraverkfall hófst, og var ætlunin og er auðvitað ætlunin að dreifa henni nú á næstunni. Þetta hygg ég, að hafi fallið hv. þm. úr minni. Hitt er það, að einstakar – við skulum segja áætlanir eða því um líkt og grg. um einstök atriði hafa ekki verið sendar til Alþ. En í þessari ársskýrslu á að vera ítarleg grg., m.a. um lánveitingar. Þau ummæli, sem hv. þm. vitnaði til, að ég hefði haft hér á sínum tíma, eru laukrétt eftir höfð, og ég hef ekki sérstaklega staðfest þá samþykkt, sem Framkvæmdastofnunin eða stjórn hennar hefur gert um þetta. Ég held, að þrátt fyrir þá samþykkt hafi allmikið af lánum og fyrirgreiðslum farið t.d. í Reykjaneskjördæmi. Ég man t.d. í svipinn eftir ýmsum slíkum þáttum, sem þar hafa verið studdir, og það er vitaskuld ekki nema eðlilegt að mínum dómi, þannig að ég held, að þessi samþykkt, sem varðar aðeins skipakaupin, ef ég man rétt, hafi ekki verið framkvæmd bókstaflega.