03.04.1974
Efri deild: 97. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3428 í B-deild Alþingistíðinda. (3074)

178. mál, Félagsmálaskóli alþýðu

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég tel nauðsynlegt, að við þessar umr. liggi fyrir nokkru fyllri upplýsingar um efni þessa frv. en fram hefur komið í umr. um málið, og óska eftir því, að hæstv, félmrh. sé viðstaddur umr. (Forseti: Hæstv. ráðh. fór til Nd. til að hafa þar framsögu um mál, en kemur aftur í deildina innan tíðar.) Ég ætlaði að leggja fyrir hann nokkrar spurningar.