06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

359. mál, rafvæðing sveitanna

Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Það kemur í ljós af svörunum, að það er þegar undirbúin athugun á stöðu þeirra býla, sem eftir verða, þegar þriggja ára áætluninni lýkur. Ég tel það mjög mikilsvert og vil þakka það, að stefnt er að því að hraða þeirri athugun, þannig að það, sem gert kann að vera til viðbótar þriggja ára áætluninni, á að vera hægt að gera í beinum tengslum við lok hennar.