24.04.1974
Neðri deild: 111. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3906 í B-deild Alþingistíðinda. (3445)

267. mál, aðstoð við kaupstaði eða kauptún vegna landakaupa

Frsm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Mál þetta er komið frá hv. Ed. og var þar samþ. án ágreinings. Þetta mál hefur svo verið athugað í félmn. þessarar hv. d., og mæla nm. einróma með samþykkt þess. Fjarverandi við afgreiðslu málsins var Ágúst Þorvaldsson. N leggur til, að málið verði samþ. óbreytt.