29.04.1974
Sameinað þing: 79. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3962 í B-deild Alþingistíðinda. (3516)

121. mál, z í ritmáli

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég tel fjarstæðu að gera mál eins og þetta að þingmáli, tel það alls ekki koma Alþ. við, hvort ákveðið er að skrifa ypsilon eða setu eða einfaldan eða tvöfaldan samhljóða í ritmáli, tek því ekki þátt í atkvgr., sit hjá, greiði ekki atkv., legg hvorki til né frá með það, hvort botnlanginn verður settur í aftur eða ekki.