29.04.1974
Efri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3967 í B-deild Alþingistíðinda. (3535)
274. mál, almenn hegningarlög
Frsm. (Björn Fr. Björnsson):
Herra forseti. Ég tel, að það sé rétt, að ég mæli ekki aðeins fyrir því frv., sem hér er á dagskránni, heldur taki ég líka um leið til athugunar það frv., sem næst kemur á dagskrá, vegna þess að þessi bæði frv. hanga í raun og veru saman, eru nánast óaðskiljanleg. En þetta geri ég með samþykki hæstv. forseta.
Þá er það mál 274. Með því frv. til breyt. á hegningarlögum er að því stefnt, að lögfest verði í almennum hegningarlögum refsiákvæði, sem feli það í sér, að meiri háttar brot á ákvæðum l. um ávana- og fíkniefni varði við hin almennu hegningarlög. Með þessu frv. eru þau viðhorf í þessum málum alveg sérstaklega áréttuð og undirstrikuð og þar með, að sérstaklega saknæm brot á þeim l., ef þetta frv. nær fram að ganga, varði þungri refsingu og því talin mjög alvarlegs eðlis.
Hegningarlaganefnd hefur unnið að þessu frv. Allshn. hefur ekkert við það að athuga, en vill mæla mjög með því, að frv. nái fram að ganga.
Næsta mál á dagskrá er mál 275. Þetta lagafrv. er flutt til þess að gera það öldungis ótvírætt, að brot gegn l. um ávana- og fíkniefni, svo og brot gegn því ákvæði, sem felst í frv. því, sem ég áður gat um, falli undir valdsvið þess dómara, sem fjallar um rannsóknir í ávana- og fíkniefnamálum, en um þann dómara gilda lög, sem voru samþ. á Alþingi í fyrra, og þetta frv. því til breyt, á þeim l. Það hefur þótt alveg sjálfsagt, að rannsóknardómari í ávana- og fíkniefnamálum hafi með þau brot að gera, sem snerta þau mál og varða refsingu eins og greinir í ákvæðum hegningarlaga, er hið fyrra frv. hefur fengið staðfestingu.
Allshn. mælir einróma með samþykkt þessa Frv.