07.11.1973
Neðri deild: 16. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (360)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Gils Guðmundsson) :

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Ingi Tryggvason bóndi á Kárhóli, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Jónas Jónsson,

4. þm. Norðurl. e.“

Ingi Tryggvason hefur áður tekið sæti á þingi á þessu kjörtímabili, og þarf því ekki að rannsaka kjörbréf hans. Býð ég hann velkominn til starfa.