03.05.1974
Efri deild: 116. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4142 í B-deild Alþingistíðinda. (3744)

309. mál, Iðnlánasjóður

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég get verið stuttorður um þetta frv. og nál. Frv. gerir ráð fyrir nauðsynlegum breyt. á l. um Iðnlánasjóð með tilliti til þeirra hreytinga, sem samþ. voru við lög um Sölustofnun lagmetisiðnaðarins. Mælir iðnn. á þskj. 824 með samþykkt þessa frv. óbreytts.