06.05.1974
Sameinað þing: 84. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4227 í B-deild Alþingistíðinda. (3801)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Eysteinn Jónsson):

Þessar umr. geta ekki haldið áfram lengur en til kl. fjögur. Það er ekki hægt að taka lengri tíma í þessar umr., enda ætti að vera hægt að koma öllum höfuðsjónarmiðum á framfæri á þeim tíma, ef hv. þm. vildu hafa um það góða samvinnu. Það eru 3 á mælendaskrá. Þegar þeir hafa lokið máli sínu, mun ég takmarka ræðutímann mjög, í 2–3 mínútur, eftir því sem verður eftir af hugsanlegum fundartíma. Ég vil mjög biðja um samvinnu þm. í því að stytta ræðurnar.