07.05.1974
Sameinað þing: 85. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4232 í B-deild Alþingistíðinda. (3812)

326. mál, almenningsbókasöfn

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að svara fyrst 2. lið í fsp. hv. 11. landsk. þm. á þá leið, að þegar fsp. hv. þm. kom fram, var verið að ganga frá fjölritun á frv. um almenningsbókasöfn, og hefur það nú verið lagt fyrir Alþingi.

Fyrri liðnum svara ég á þá leið, að í grg. með frv. kemur fram, hvernig háttað er því starfi, sem liggur að baki flutningi frv.