08.05.1974
Efri deild: 124. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4299 í B-deild Alþingistíðinda. (3899)

3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Við 2. umr. um þetta mál sagði ég nokkur orð almennt um það, sem ég tel eðlilegar breytingar á Framkvæmdastofnun ríkisins eftir 21/2 árs starf. En ég hygg, að mér hafi láðst að geta þess í lok þeirrar ræðu, að með tilliti til þess, sem ég sagði þar, mun ég ekki greiða atkvæði um þetta frv. og sit hjá.