08.05.1974
Neðri deild: 125. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4347 í B-deild Alþingistíðinda. (3956)

291. mál, almannatryggingar

Frsm. meiri hl. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. til I. um breyt. á l. nr. 61 1971, um almannatryggingar, sem er 291. mál þessa þings, en máli þessu var vísað til n. í gær. Meiri hl. n., 5 nm. af 7, mælir með samþykkt frv., og liggur nál. þeirra frammi á þskj. 890.