12.11.1973
Sameinað þing: 17. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (407)
91. mál, samningar við Belgíu, Noreg og landsstjórn Færeyja um veiðar innan fiskveiðilögsögu Íslands
Frsm. (Gils Guðmundsson) :
Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér liggur fyrir, staðfestir, ef samþ., verður, samninga þá, sem ríkisstj. hefur gert við ríkisstj. Belgíu og Noregs og landsstjórn Færeyja um heimildir til veiða innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Efni samninga þessara er hv. alþm. gerkunnugt, enda eru þeir allir komnir til framkvæmda.
Utanrmn. hefur fjallað um þáltill. Eins og fram kemur á þskj. 111, sem verið er að útbýta, leggur n. einróma til, að till. verði samþ. óbreytt.