13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

Varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Heimis Hannessonar héraðsdómslögmanns, sem nú tekur sæti á Alþ. í veikindaforföllum Stefáns Valgeirssonar, 3. þm. Norðurl. e. N. hefur íhugað þau skjöl, sem hafa fylgt í sambandi við kosningu þessa varamanns, telur ekkert við þau að athuga, og mælir með því, að kosning varamannsins verði metin gild og kjörbréf hans samþykkt.