13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (465)

50. mál, stytting vinnutíma

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, og eins og ég tók fram í upphafi minnar fsp., tek ég fyllilega til greina þá erfiðleika, sem við er að etja til þess að fá fullnaðarsvar við fsp. Ég vil jafnframt þakka hæstv. ráðh. fyrir að hafa gert ráðstafanir til þess, að slíkar upplýsingar geti legið fyrir í framtíðinni.