14.11.1973
Efri deild: 20. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (498)

70. mál, starfskjör launþega

Félmrh. (Björn Jónsson) :

Herra forseti. Það hefur verið almenn skoðun ríkjandi, að kjarasamningar stéttarfélaga og samtaka vinnuveitenda væru algerlega bindandi fyrir alla vinnuveitendur og launþega í viðkomandi starfsgrein á því svæði, sem samningarnir ná til, án alls tillits til þess, hvort þeir vinnuveitendur og launþegar, sem um er að ræða, séu aðilar að þeim samtökum, sem undirrita samninga, eða ekki. Þetta ríkjandi álit hefur þó beðið nokkurn hnekki í forsendum og að nokkru leyti í dómsorðum allmargra hæstaréttardóma frá síðari árum, m. a. tveggja frá árinu 1971, sem sérstaklega er vísað til í grg. sem frv. fylgir. Er raunar auðsætt, að þessir dómar skapa verulega réttaróvissu, að því er varðar rétt verkafólks og verkalýðsfélaga gagnvart þeim vinnuveitendum, sem standa utan vinnuveitendasamtaka, en þar er um að ræða mikinn fjölda, sérstaklega smáatvinnurekenda. Enn meiri óvissa leiðir af þessum dómum fyrir launafólk, þegar svo vill til, að hinir síðarnefndu eru ekki í viðeigandi stéttarfélagi, en slíkt er nokkuð algengt, bæði sem tímabundið ástand og þó e. t. v. sérstaklega þegar um aukavinnu er að ræða eða vinnu hluta úr degi. Af þessu leiðir, að möguleikar eru fyrir hendi fyrir einstaka vinnuveitendur að nota sér aðstöðu sína til að skammta verkafólki naumari rétt en kjarasamningar segja til um. 7. gr. l. nr. 80 frá 1938, þ. e. vinnulöggjafarinnar, er að vísu ætlað að girða fyrir slíkar hættur, en svo virðist sem sú lagagr. tryggi ekki fullan rétt launþega í öllum tilvikum, og þykir því réttmætt og eðlilegt að taka hér af allan hugsanlega vafa, eins og gert er með ákvæðum 1. gr. þessa frv.

Með 2. gr. frv. er svo ákveðið, að öllum launþegum sé rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps, og enn fremur, að vinnuveitendum sé skylt að halda eftir af launum starfsfólks síns iðgjaldahluta þess og standa réttum lífeyrissjóði skil á honum ásamt mótframlagi sínu.

Með 3. gr. er síðan ætlað að tryggja viðkomandi stéttarfélagi á sama hátt greiðslur í sjúkra- og orlofssjóði.

Loks er í 4. gr. frv. ákvæði, sem kveða skýlaust á um stöðu framangetinna iðgjalda til sjóðanna í skuldaröð í hugsanlegum þrotabúum atvinnurekenda.

Ákvæði þessa frv. eru hvorki svo mörg né flókin, að ég telji nauðsyn að hafa um þau öllu fleiri orð. Ég vil þó geta þess, að frv. er upphaflega samið að tilhlutan Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, og hefur miðstjórn Alþýðusambands Íslands gert samþykkt, sem mælir eindregið með því, að það verði að lögum. Ég tel einnig fullvíst, að samtök vinnuveitenda, — en ég tel eðlilegt, að þeim verði sent frv. til umsagnar, — verði meðmælt frv., þar sem auðsætt er, að möguleg misnotkun einstakra óskipulagðra vinnuveitenda sé fyrir hendi í skjóli réttaróvissu um skyldukjör launþega. Og það gæti hæglega skapað slíkum mönnum óheiðarlega og óeðlilega samkeppnisaðstöðu gagnvart félögum vinnuveitendasamtakanna, t. d. með því, að þeir gætu sparað sér yfir 7% viðbót við útborguð laun verkafólks. Er þess vegna harla ólíklegt, að vinnuveitendasamtökin mundu vilja una slíku.

Herra forseti. Ég vænti greiðrar afgreiðslu hv. þd. á þessu frv., sem ég tel innihalda sjálfsagt réttlætismál, og legg til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.