19.11.1973
Neðri deild: 25. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (595)
95. mál, fóstureyðingar
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð að þessu sinni. Það hefur komið hér fram, að þingflokkur SF stendur ekki að þessu frv., eins og það er fram borið. Eigi að síður er það mitt álit, að ýmislegt í þessu frv. sé til bóta frá núverandi löggjöf. En það er þó eitt meginákvæði þessa frv., sem a. m. k. stendur í mér og á sennilega eftir að koma til með að standa í fleiri hv. þm., en það er hin margumtalaða 9. gr. um fóstureyðingar.
Ég ætla ekki að fara út í að fjalla ítarlega eða að neinu marki um þetta atriði, en ég held, að hv. þm. verði, þegar til þess kemur, að þeir taki ákvörðun um þetta atriði, að hugleiða, hvaða þróun hefur átt sér stað og hvernig að málum er staðið í þeim löndum, sem hvað lengst eru komin á þessu sviði, þ. e. a. s. þar sem eru frjálsust fóstureyðingarlöggjöf, eins og t. d. í Svíþjóð. Ég las ekki alls fyrir löngu í Morgunblaðinu grein um þessi efni einmitt, hvernig þessi mál hafa þróast þar, og ég er ekki í neinum vafa um, að það skref, ef stigið verður, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, með frjálsari fóstureyðingum, verður ekki lokaskref í þessum efnum, það verður aðeins upphafið á enn stærra skrefi til aukins frjálsræðis í þessum efnum. Ég tek þess vegna undir það, sem hér hefur komið fram hjá hv. þm., að leggja beri höfuðáherslu á þær varnaðaraðgerðir, sem um er rætt, frekar en að auka að miklum mun frjálsræði í þessum málum.
Ég hirði ekki um, a. m. k. ekki á þessu stigi, að lesa kafla úr þessari tilvitnuðu grein í Morgunblaðinu, sem fjallar um fóstureyðingar og tilraunir á fóstrum. Hún er svo ógeðsleg að mínum mati, að ég held, að ég hafi aldrei lesið á prenti álíka eins og þarna stóð (BGuðn.: Trúir þú Mogganum?) Það kemur fyrir, já. Ég hef ekki alltaf lokuð augu, eins og sumir. En ég læt þetta nægja að sinni. Ég vil sem sagt ítreka það, að margt í þessu frv., eins og það nú er, horfir að minn mati til bóta, en ég er ekki reiðubúinn til þess að standa að samþykkt II. kaflans, eða 8., 9. og 10. gr., eins og þar er gert ráð fyrir.
Ég vil að lokum að gefnu tilefni spyrja hæstv. heilbrrh. um það, hvort ráðh. SF, hafi setið þann ríkisstj. fund, sem hann vitnaði til áðan og þessi bókun var gerð á, sem hann einnig greindi frá. Ég hygg, að svo hafi ekki verið. En mér þætti vænt um, ef hæstv. ráðh. vildi upplýsa, hvort þeir ráðh. voru staddir á þeim fundi, þar sem þetta var samþykkt.