20.11.1973
Sameinað þing: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (623)

369. mál, breytingar á skattalögum

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Út af móðurlegri áminningu hv. 12. þm. Reykv. vil ég segja það, að ég hlýt eins og aðrir hv. þm. að geta haft mínar skoðanir á málunum. Ég lýsti þeim í fjárlagaræðunni um daginn og endurtók þær hér áðan, og þurfti engar sérstakar áminningar til þess vegna. Stundum hefur nú heyrst, að ríkisstj. ætti að hafa forustu um mál, og fsp. beindist að því.