22.11.1973
Efri deild: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (686)

40. mál, gjaldaviðauki

Frsm. (Ragnar Arnalds) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, hefur verið árlegur gestur á borðum þm. Það hefur verið til athugunar hjá fjh.- og viðskn., og hún mælir einróma með samþykkt þess að venju.