28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (820)

11. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða frv., sem flutt er til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út á s. l. Sumri og miðuðu aðeins að því að framlengja til ársloka gildistíma laga um botnvörpuveiðiheimildir í fiskveiðilandhelgi. Frv. hefur þegar gengið í gegnum Ed., og ég vil vænta þess, að það fái fljóta afgreiðslu hér. Málið er eins einfalt og hugsast getur, og er í rauninni ekki ástæða til að ræða frekar um það hér af minni hálfu.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2, umr. og hv. sjútvn. til fyrirgreiðslu.