25.10.1973
Sameinað þing: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (85)

341. mál, bætur til bænda vegna vegagerðar

Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra greinargóð svör og fagna því fyrirheiti, sem kemur fram í orðum hans, að hann beiti sér fyrir því, að ógoldnar skuldir Vegagerðarinnar, sem óneitanlega eru æðiháar samkv. þeim upplýsingum, sem hann gaf, — ógoldnar skuldir Vegagerðarinnar við bændur verði greiddar.