05.12.1973
Neðri deild: 36. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (975)

11. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Frsm. (Garðar Sigurðsson) :

Herra forseti. Þetta frv. er flutt til staðfestingar á brbl. varðandi framlengingu gildandi l. um veiðiheimildir með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni til n. k. áramóta. Ég vona, að ekki komi til frekari framlengingar þeirra laga með því að þm. verði snarir við að afgreiða frv. um það efni, sem kemur væntanlega fram á næstu dögum.

Sjútvn. samþykkti á fundi sínum að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.