05.12.1973
Neðri deild: 36. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (977)

89. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Frsm. (Garðar Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 97 má lesa í aths. um þetta frv. skýringar á því, en þar er einnig sagt, að tilgangurinn með breytingum þeim á verðlagsráðinu, sem lagðar eru til í frv., komi til með að auka hagkvæmni í störfum verðlagsráðsins. Frv. er samið af Verðlagsráði sjávarútvegsins sjálfu og lagt fram eftir þess ósk. Sjútvn. Nd. hefur rætt þetta mál á fundum sínum og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.