25.10.1973
Sameinað þing: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

348. mál, vegagerð í Mánárskriðum

Fyrirspyrjandi (Eyjólfur K. Jónsson) :

Herra forseti. Síðasta Alþ. samþykkti þál. um kostnaðaráætlun um vegagerð í Mánárskriðum. Hljóðar ályktunin þannig, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta gera frumáætlun um kostnað við vegagerð niðri við sjó í Mánárskriðum á Siglufjarðarvegi.“

Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. samgrh. um það, hvað líði framkvæmd þessarar þál.