05.09.1974
Neðri deild: 19. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

Starfslok neðri deildar

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta góða og óhlutdræga fundarstjórn og ágætt samstarf við okkur þm. Ég árna honum og fjölskyldu hans alls hins besta og vona, að við hittum hann heilan á húfi, þegar reglulegt Alþ. kemur saman í haust. Ég bið hv. þdm. að gefa orðum mínum aukna áherslu með því að risa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]