05.09.1974
Sameinað þing: 7. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í B-deild Alþingistíðinda. (290)

Þinglausnir

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Við lok þessa þings vil ég leyfa mér að þakka hæstv. forseta og varaforseta Sþ. störf þeirra í þágu þjóðar og þings, þakka þeim samvinnu við okkur þm. og árna þeim heilla. Ég bið hv. alþm. að taka undir þessar þakkir og árnaðaróskir með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]