22.08.1974
Neðri deild: 8. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

6. mál, fjáröflun til vegagerðar

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að skýra frá því, að þetta mál var undirbúið af mér og fjmrn. og lagt fram án þess, að það væri gengið frá því við þann flokk, sem nefndur var hér áðan, Sjálfstfl. Málið verður til athugunar í n., og þá kemur fram afstaða þingflokka. En það var talið rétt að setja málið nú til athugunar, til þess að 1. umr. gæti farið fram. En ákvörðunin um flutning þess var gerð af minni hálfu.