20.12.1974
Neðri deild: 35. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)

Þingfrestun

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Þar sem þetta er síðasti fundur Nd. nú fyrir jól vil ég þakka hv. þdm. samstarf þann tíma sem af er þessu þingi og umburðarlyndi við mig sem forseta. Ég leyfi mér að óska þdm. öllum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs og læt í té ósk um að við megum hittast heil á næsta ári, þegar Alþ. kemur saman til fundar á ný. Sömuleiðis óska ég skrifstofustjóra þingsins og starfsfólki öllu og fjölskyldum þess gleðilegrar jólahátíðar og farsæls komandi árs og þakka þeim prýðilega aðstoð og samstarf það sem af er þessu þingi.