21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)

1. mál, fjárlög 1975

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Að sjálfsögðu er það alrangt, að þessi till. feli í sér lækkun á framlagi til Lánasjóðs ísl. námsmanna, enda skerðir þessi till. ekki þá lánsheimild sem annars staðar er fólgin í till. fjvn. En eins og ég benti á í umr. í gær, þá vil ég ítreka það hér að fjármagn verður því aðeins fyrir hendi og unnt að taka tillit til nýs kostnaðarmats að þessi till. verði samþ., þannig að aukið fjármagn fáist til Lánasjóðs. Þess vegna segi ég já.