21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)

Þingfrestun

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Þetta er síðasti fundur Alþingis fyrir jólahlé. Ég leyfi mér að færa hæstv. ráðh. og hv. alþm. þakkir fyrir gott samstarf og umburðarlyndi í minn garð. Einnig þakka ég varaforsetum, skrifurum, skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis vel unnin störf og aðstoð alla. Ég óska hv. þm., fjölskyldum þeirra og starfsliði Alþingis gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Það er von mín, að við megum öll hittast heil, þegar Alþ. hefst að nýju í lok janúar á næsta ári.