27.01.1975
Sameinað þing: 31. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1176)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Ég þakka hæstv. forsrh. góðar óskir í garð okkar alþm. og starfsfólks Alþingis. Jafnframt óska ég hæstv. ríkisstj. og hv. alþm. gleðilegs nýárs og þakka þeim fyrir samstarfið á árinu sem var að líða.

Samkvæmt bréfi því, sem hæstv. forsrh. las, er þingfundur settur.