29.01.1975
Sameinað þing: 34. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hafa borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 28. jan. 1975.

Formaður þingflokks Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Ellerts B. Schram, 11. þm. Reykv., sem er á förum til útianda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotum til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess að 2. varam. Sjálfstfl. í Reykjavík, Gunnar J. Friðriksson iðnrekandi, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Magnús T. Ólafsson, forseti Nd.

„Reykjavík, 28. jan. 1975.

Af sérstökum ástæðum get ég ekki tekið sæti á Alþ. í fjarveru Ellerts B. Schram, 11. þm. Reykv. næstu tvær vikur.

Virðingarfyllst,

Geirþrúður Hildur Bernhöft.“

Það þarf að rannsaka kjörbréf Gunnars J. Friðrikssonar og gef ég kjörbréfanefnd 10 mínútur til að rannsaka kjörbréfið. Fundi er frestað í 10 mínútur meðan kjörbréfanefnd starfar. — [Fundarhlé.]