05.02.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1496 í B-deild Alþingistíðinda. (1313)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 31. jan. 1975.
Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Norðurl. v., Hannes Baldvinsson síldarmatsmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Þorv. Garðar Kristjánsson, forseti Ed.“
Það þarf að rannsaka kjörbréf Hannesar Baldvinssonar og hið ég kjörbréfanefnd að taka við kjörbréfinu og rannsaka það og fær hún 10 mín. til umráða. — [Fundarhlé.]