05.02.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1496 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Hannesar Baldvinssonar síldarmatsmanns á Siglufirði sem 1. varaþm. Alþb. í Norðurl. v. Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neina galla á kjörbréfinu og leggur til samhljóða að kjörbréfið verði samþ. og kosning Hannesar Baldvinssonar tekin gild.